Vaðlahof

Vaðlahof er glæsilegt sumarhús í Vaðlaheiði gegnt Akureyri með frábært útsýni yfir pollinn, Akureyri og Hlíðarfjall, einnig inn og út með firði. Húsið er staðsett á sama svæði og Vaðlaborgir, ca 5 km austan Akureyrar. Húsið er 120 fm, bjart og fallegt á tveim hæðum auk svefnlofts.

Á aðalhæð er forstofa, baðherbergi með sturtu, tvö svefnherbergi með tvíbreiðum rúmum, eldhús, borðkrókur og stofa. Úr stofu er gengið út á stóran og góðan pall með garðhúsgögnum og grilli. Svefnloftið er með fjórum 90 cm breiðum rúmum.

Á neðri hæð er heitur pottur, klósett, tvö svefnherbergi og sturtur. Svefnherbergin niðri eru hvort um sig með tveim 90 cm breiðum rúmum. Það er ekki innangengt á milli hæða.

Gistipláss og borðbúnaður er fyrir 12 manns í húsinu.

Hægt er að kaupa þrif á 18.000kr.

Lágmarks leiga er tvær nætur.

Umgengnisreglur.

Leigandi þarf að hafa ná 20 ára aldri, Leigutaki verður að dvelja í húsinu.

Húsið er leigt með húsgögnum, eldhúsbúnaði og öðrumlausamunum.

Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins meðan á leigutímastendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón sem verða kann af hans völdum eða þeirra sem dvelja á hansvegum í húsinu á leigutíma.

Leigjandi skal ganga vel um hús og umhverfi, ræsta húsið viðbrottför og sjá um að hver hlutur sé á sínum stað.

Leigjandi skal sjá um að uppþvottavél sé tóm við brottför.

Leigjandi skal virða þær reglur er gilda á skiptidegi þ.e. að losahúsið klukkan 12:00 á brottfarardegi en komutími í húsið er kl.17.00 í upphafi orlofsdvalar.

Leigjandi þarf að hafa með sér handklæði, sápu, sænguver, lök og koddaver. Hægt að leigja lín fyrir 2.000kr per mann.

Dvalargestir eru beðnir um að forðast hávaða með bílaumferð á orlofshúsasvæðinu.

Leigjandi skal ganga vel um staðinn og gæta þess að spilla ekki gróðri eða landi á nokkurn hátt.

Lesið vel leiðbeiningarnar sem festar eru upp í húsunum og skylt er að fara eftir.

Athugið að reykingar eru með öllu óheimilar í húsinu.

Leigjandi ber að þrífa húsið vel við brottför.

Þrífa skal vel sturtu, klósett,handlaug og bekkinn þar í kring.

Þurrka af borðum, bekkjum og hilum.

Ryksuga og skúra golf.

Þrífa skal kám af gluggum og speglum.

Þrífa skal ísskáp að innan og utan.

Þrífa skal helluborð og bakarofn.

Þrífa skal örbylgjuofn.

Þrífa skal gasgrill.

Ef ekki er vel þrifið við brottför verður leigjandi rukkaðurum þrif. (18.000kr)